09.11.2007 10:10
Æfingatafla vetur 2007.
9. nóvember 2007
Æfingataflan ætti að vera komin til allra krakkana í grunnskólanum,
Henni var dreift þar í gær og fyrstu æfingarnar voru líka í gær og var fín mæting.
Í næstu viku er komið að dósasöfnun og það fellur í hlut 8. - 10. bekkjar að fara á þriðjudaginn kl. 18 .
Það fellur því líka í hlut foreldra barna í 8. - 10 bekkj að koma dósunum niður á afgreiðslu og að flokka þær.
kveðja Gísli Arnar.

Skrifað af Einherji
07.11.2007 15:34
Æfingar hefjast að nýju.
Loksins er komið að því að við hefjum æfingar að nýju, en á morgun 8 /11 mun ég dreifa æfingatöflu í skólanum þar sem sett hefur verið niður allar æfimgar sem Einherji hefur uppá að bjóða í vetur.
það er að segja, Fimleikar.Knattspyrna og íþróttaskóli barnanna.
Hvað handboltann varðar koma uppplýsingar fljótlega.
Gísli Arnar.
það er að segja, Fimleikar.Knattspyrna og íþróttaskóli barnanna.
Hvað handboltann varðar koma uppplýsingar fljótlega.
Gísli Arnar.Skrifað af GAG
27.07.2007 08:19
Stórsigur
Einherji sigraði Þrist mjög svo sannfærandi 7-0 í gærkvöldi, nú er bara að vona að okkar menn séu komnir í gírinn og nokkrir sigrar komi í kjölfarið.
Skrifað af Einherji
26.07.2007 08:56
Einherji - Þristur
Í kvöld klukkan 20:00 tekur Einherji á móti Þristinum í Malarvinnslubikarnum. Hingað til hefur okkar mönnum ekki gengið nógu vel en vonandi breytist það í kvöld.
Skrifað af Einherji
19.06.2007 13:28
Malarvinnslubikarinn
Einherji hefur ákveðið að senda lið til keppni í Malarvinnslubikarnum og hefur Elías Björnsson verið ráðinn til þess að þjálfa liðið, Helgi Ásgeirsson mun verða honum innan handar. Mikill áhugi er hjá strákunum sem koma til með að spila í þessari keppni en þar er um að ræða marga mjög frambærilega knattspyrnumenn. Vonandi er þetta byrjunin á því að Einherji sendi lið til þátttöku á Íslandsmótinu á nýjan leik.
Skrifað af Einherji
17.06.2007 18:58
17. júní hlaup
Í morgun fór fram hið árlega 17. júní hlaup Einherja í rjómablíðu og höfðu keppendur sem og þeir foreldrar og forráðamenn sem mættu mjög gaman að. Hlaupið er styrkt af Sparisjóði Þórshafnar sem gefur öll verðlaun í hlaupið. Það sem kemur á óvart er hversu fáir mæta til þess að taka þátt og því viljum við skora á alla Vopnfirðinga að hrista nú af sér slenið og mæta eldhressir í 17. júní hlaup á næsta ári.Hinum sem mættu til að keppa í morgun þökkum við kærlega fyrir þátttökuna sem og þeim sem mættu til að fylgjast með. Myndir sem teknar voru í hlaupinu munu koma á síðuna hjá okkur á næstunni.
Skrifað af Einar Björn
16.06.2007 09:53
17.júní hátíðarhöld 2007
Kl. 08:00 Fánar dregnir að húni.
Kl. 10:00 Víðavangshlaup Einherja og Sparisjóðs Þórshafnar, hlaupið frá skólanum.
Kl. 13:00 Hátíðarmessa að Hofi.
Kl. 14:00 Skrúðganga frá Miklagarði að Skólalóð.
Kl. 14:30 Hátíðardagskrá á skólavelli . Hefðbundin dagskrá ásamt léttum leikjum.
Kl. 16:00 Hátíðarkaffi í Miklagarði. Verð 1.000,- fyrir fullorðna, 500,- fyrir 6-12 ára.
Kl. 20:00 Skemmtun í miðbæ Vopnafjarðar, Húnarnir sjá um fjörið- kaffi gos og sælgæti í boði á vægu verði.
Fögnum þjóðhátíðardegi Íslendinga með bros á vör.
Skrifað af Einherji
14.06.2007 11:02
17. júní
Að venju hefur U.M.F. Einherji umsjón með hátíðarhöldunum á þjóðhátíðardaginn og er undirbúningur í fullum gangi. Dagskráin verður með nokkuð hefðbundnu sniði og verður hún nánar auglýst hér á síðunni og með dreifibréfi á morgun.
Skrifað af Einherji
14.06.2007 10:56
5.flokkur karla
5. flokkur karla spilaði fyrsta heimaleikinn sinn síðasta þriðjudag og voru mótherjarjarnir UMFL ekki gekk okkar mönnum nógu vel en niðurstaðan var 1-3 ósigur. Á eftir leik buðum við okkar mönnum í "flatbökuveislu" í félagsaðstöðunni og þar stóðu þeir sig mjög vel og skemmtu sér konunglega.
Skrifað af Einherji
08.06.2007 08:14
Góður sigur.
Stelpurnar í 5. flokki unnu góðan 4-1 sigur í gær en þá kepptu þær við lið frá Fjarðarbyggð, sigurinn var nokkuð öruggur og aldrei í hættu. Að leik loknum var stelpunum svo boðið í pizzuveislu í félagsaðstöðunni og var þar mikið gaman og mikið grín.
Skrifað af Einar Björn
06.06.2007 20:33
Fyrsti heimaleikurinn
Á morgun fimmtudaginn 07. júní er fyrsti heimaleikur 5. flokks kvenna en þá mætast Einherji/Huginn og Firðir en það er lið úr Fjarðarbyggð. Leikurinn hefst kl 17.00 og viljum við hvetja alla foreldra sem og aðra áhugamenn um knattspyrnu að mæta á völlinn og hvetja stelpurnar til sigurs.
Skrifað af Einar Björn
19.05.2007 21:21
Fjarðarálsmót.
Síðasta fimmtudag fóru tvö lið frá okkur og tóku þátt í Fjarðarálsmótinu í knattspyrnu.
Í 5. flokki karla var sameiginlegt lið Einherja og Hugins sem keppti í flokki B- liða og stóðu þeir sig vel og lentu í þriðja sæti, unnu tvo leiki en töpuðu tveimur.
Í 6. flokki kvenna, A- liða sem var eingöngu skipaður stelpum frá okkur gerðu stelpurnar sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki og þar ,með mótið.
Í dag fóru svo 5. flokkur kvenna og 7. flokkur og tóku þátt, þarna vorum við með sameiginlegt lið með Huginsmönnum. Bæði liðin keppu í B-flokki. 5. flokkur kvenna stóð sig með prýði og lenti í fyrsta sæti þær unnu tvo leiki og gerðu eitt jafntefli. Í 7. flokki stóðu krakkarnir sig mjög vel og unnu mótið, þau unnu þrjá leiki en töpuðu einum.
Þetta voru fyrstu mótin þar sem við sendum sameiginleg lið með Huginsmönnum en eins og fram hefur komið ætlum við að gera það í sumar. Reynslan af þessum mótum er bara mjög góð og vonandi á þessi samvinna eftir að vera til góðs fyrir bæði félögin.

09.05.2007 12:09
Fótboltaskemmtun
Opið verður í félagsaðstöðunni okkar í kvöld og hægt að horfa á leik Man Utd og Chelsea á breiðtjaldi, húsið opnar kl: 18:45 allir velkomnir.
Skrifað af Einherji
11.04.2007 16:18
Samkomulag
Einherji og Huginn hafa gert samkomulag um að senda sameiginleg lið til þátttöku á Íslandsmótinu í knattspyrnu í sumar. Um er að ræða 5. flokk karla og kvenna 3. flokk kvenna og 6. og 7. flokk.
Skrifað af Einherji
27.03.2007 08:22
Félagsaðstaða
Vegna óviðráðanlegra orsaka verðum við að fresta þvi að taka félagsaðsöðuna okkar formlega í notkun, nánar augýst síðar.
Skrifað af Einherji
Flettingar í dag: 49
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 56
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 227910
Samtals gestir: 56194
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:31:15